Úr Varabálki

Án kærleika er vonin veik
Völt og reikul trúin
Líkt sem eik af elli bleik
Elds til kveikju búin

Hvar sem leið þín liggur hér
Lífs meðan eyðir degi
Æðstan heiður álít þér
Öðrum greiða vegi

Synjaðu snauðum síst um brauð
Sért ótrauður gjafa
Það eru gauð sem neita í nauð
Nokkurn auð þó hafa

Sérhvern styð með sæmd og trú
Sem þú lið mátt færa
Gakk á snið við það sem þú
Þarft ei við að hræra

Sína hver einn byrði ber
Böl þá sker sem líða
Gefið hér ei öllum er
Auðnu sér að smíða

Curiosidades sobre la música Úr Varabálki del Hjálmar

¿Cuándo fue lanzada la canción “Úr Varabálki” por Hjálmar?
La canción Úr Varabálki fue lanzada en 2007, en el álbum “Ferðasót”.

Músicas más populares de Hjálmar

Otros artistas de Reggae music