Þú Veist Í Hjarta Þér

Þú veist í hjarta þér
Kvað vindurinn
Að vegur drottnarans er ekki þinn
Heldur þar sem gróandaþytur fer
Og menn þerra svitann af enni sér
Og tár af kinn

Þú veist í hjarta þér
Kvað vindurinn
Að varnarblekkingin
Er dauði þinn
Engin vopnaþjóð er að vísu frjáls
Og að vanda sker hún sig fyrr á háls
En óvin sinn

Þú veist í hjarta þér
Kvað vindurinn
Að vald og ríki'er ekki
Manngrúinn
Hvað þarf stóra þjóð til að segja satt
Til að sólarljóð hennar ómi glatt
I himininn?

Curiosidades sobre la música Þú Veist Í Hjarta Þér del Hjálmar

¿Cuándo fue lanzada la canción “Þú Veist Í Hjarta Þér” por Hjálmar?
La canción Þú Veist Í Hjarta Þér fue lanzada en 2007, en el álbum “Ferðasót”.

Músicas más populares de Hjálmar

Otros artistas de Reggae music