Aleinn um jólin

Halldór Gunnarsson, Máni Svavarsson

[Verse 1]
Veistu hvað sagt er um menn
Sem oft týna leið?
Þeir sjá á jólunum ljós
Veistu hvað sagt er um þann
Sem oft stendur einn?
Að hann á einhvern að um jólin

[Chorus]
Enginn mig sér
Sama er mér
Þó inni sé hátíð þá úti ég er
Ég vil vera' í friði um jólin
Því er ég einn um jólin

[Verse 2]
Ef það er satt
Að svart verði hvítt
Og kalt verði hlýtt
Á jólakvöld
Þá getur það gerst
Að þú gætir breyst
Og loks fundið frið um jólin

[Chorus]
Hvað er að mér?
Kræfur ég er
Læðist um nætur og hnupla frá þér
Ég vil vera í friði' um jólin
Því er ég einn um jólin

[Bridge]
Á torginu ríkir kyrrð og ró
Eg horfi á ljósin og nýfallinn snjó
Þá heyri ég hljóm
Sem fyllir upp tóm
Um jólin

[Outro]
Þekkir þú boðskapinn þann
Þú elska skalt náungann
Allt árið um kring
Byrjaðu nú um jólin

Curiosidades sobre la música Aleinn um jólin del LazyTown

¿Cuándo fue lanzada la canción “Aleinn um jólin” por LazyTown?
La canción Aleinn um jólin fue lanzada en 2001, en el álbum “Jól í Latabæ”.
¿Quién compuso la canción “Aleinn um jólin” de LazyTown?
La canción “Aleinn um jólin” de LazyTown fue compuesta por Halldór Gunnarsson, Máni Svavarsson.

Músicas más populares de LazyTown

Otros artistas de