Dansið Eða Deyið

Einar Hrafn Stefánsson, Klemens Hannigan, Matthías Haraldsson

Þrælar

Gengilbeinur ræningja

Tannlausu kjölturakkar

Sníkjudýr brauðmylsna

Blindingjar og aumingjar

Neytendur og klámhundar

Grindhoruðu betlarar

Marklausu peð

Leiksoppar hrægamma

Úrhrök

Sameinist, ómagar,
Bak í bak og dansið!

Við deyjum öll, má ég deyja með þér?

Áður en ég dey skal ég dansa með þér

– Já skal ég dansa með þér

Varpið hulunni af hendi myrkrahöfðingjans

Steypið af stóli þrælapískaranum

Og látið hann súpa – eigið meðal

Setjið hann undir okið

Sameinist, ómagar, og þrælið aldrei framar

Bak í bak og dansið

Við deyjum öll má ég deyja með þér

Áður en ég dey skal ég dansa með þér

– Já skal ég dansa með þér

Við deyjum öll ég vil deyja með þér

Sama hvað, sama hvert ég fer

Við deyjum öll, þú munt deyja með mér

Áður en ég fer, áður en ég fer

Skal ég dansa með þér

Dansið! Eða lútið oki kúgarans

Það er núna eða aldrei – dansið eða deyið

Áður en ég fer

Áður en ég fer

– Skal ég dansa með þér

Músicas más populares de Hatari

Otros artistas de Electronic Industrial